Event Information

 Hveragerdi, Iceland
03 June 2022 to 04 June 2022

Salomon Hengill Ultra-Trail © 2022

100k

ITRA Points
Itra Images
Mountain Level
  4
Finisher Level
  470
National League
-

Course details

 Race Date: 2022/06/03
 Start Time: 22:29:00
 Participation: Solo
 Distance: 105.70
 Elevation Gain: +3890
 Elevation Loss: -3910
 Time Limit: 20:0:0
 Number of Aid Stations: 7
 Number of Participants: 200
 
 

About the Race

100 km Hlaupaleiðin Hlaupið er ræst í Lystigarðinum í Hveragerði við Grunnskólann. Hlaupið er upp árgilið meðfram Varmá, framhjá gistiheimilinu Frosti og Funa, upp brekkuna og yfir götuna í átt að Hamrinum. Hlaupinn er göngustígur sunnan Hamarsins og upp á hraunkantinn, út á gamla Kambaveginn neðan Hrauntungu (sumarhús). Gamli vegurinn hlaupinn að reiðstíg sem liggur norður yfir Hamarinn, samsíða þjóðveginum. Reiðstígurinn hlaupinn inn í dalinn þar til komið er á göngustíg sem liggur að bílaplani við Varmá innst í dalnum. Þar er farin stikuð leið upp Rjúpnabrekkur og inn Reykjadalinn. Upp Klambragil úr Reykjadalnum við heita lækinn og inn á Ölkelduháls, þar til komið er að vegvísi (drykkjarstöð) sem vísar á Sleggjubeinsskarð á blá-stikaðri leið. Sú leið hlaupin sem leið liggur um Fremstadal, Miðdal, Þrengsli og Innstadal. Rétt innan við Þrengslin þarf að taka vinstri beygju af stígnum yfir lækinn og á vegslóðann sem liggur inn dalinn. Og af honum niður í Sleggjubeinsskarð, þar sem verður drykkjarstöð og salerni. Hlaupin sama leið upp í skarðið aftur en þá tekin vinstri beygja inn á svart-stikaða leið sem liggur á kambinum milli Innstadals og Húsmúla. Sá hryggur hlaupinn alveg upp á Vörðu-Skeggja hæsta punkt Hengilssvæðisins 810 m. Mikið og gott útsýni er af Skeggja í góðu veðri og unnt að virða fyrir sér fjallahring Þingvallasvæðisins og inn á hálendið. Af Skeggja er farin sama leið niður en stuttu eftir niðurleiðina er haldið áfram stikaða leið í suður og hlaupið á heiðum Hengilsins. Þar er fljótlega komið að vegvísi sem bendir á Innstadal, og honum fylgt niður þar til komið er að kofa innst í dalnum. Stígum fylgt þar til komið er inn á sömu leið og farin var inn dalinn. Hlaupin sama leið til baka að vegvísinum við Ölkelduháls og nú farið niður í Reykjadalinn norðan við Ölkelduhnjúkinn. Reykjadalurinn hlaupinn sömu leið og niður í Hveragerði hlaupið með hamrinum niður Árgil í Lystigarðinn í gegnum marklínuna þar er svo snúið við og sami hringur hlaupin aftur.

Route description