Rás- og endamark er við innganginn í íþróttahúsinu Miðgarði sem stendur við golfvöllinn í Vetrarmýrinni. Hlaupaleiðin liggur í landi Vífilsstaða og Heiðmörk og m.a. um útvistarskógana í Smalaholti og Sandahlíð. Farið er frá Miðgarði eftir slóð austur undir Hnoðraholti og meðfram golfvellinum inni í skóg Skógræktar Garðabæjar í Smalaholti og hlaupi
Farið er frá Miðgarði eftir slóð austur undir Hnoðraholti og meðfram golfvellinum inni í skóg Skógræktar Garðabæjar í Smalaholti og hlaupið þar á stígum upp á Smalaholtið sem gefur fallegt útsýni yfir Vífilsstaðavatn og Bláfjöllin. Þaðan liggur leiðin á stíg í Smalaholtinu austur að hesthúsum Garðabæjar þar sem farið er yfir Vatnsendaveg og upp í Sandahlíðina fyrir ofan hesthúsin. Komið er upp á mela Sandahlíðar Garðabæjar-megin fyrir ofan Guðmundarlund. Leiðin þaðan liggur stuttlega á hestastíg í átt að nýja Skátaheimilinu í Garðabæ. Tekin er skörp beygja við Skátaheimilið þar sem drykkjarstöð er og farið í vesturátt að Vífilsstaðavatni eftir nýjum malarstíg sem tengist við malarstíginn í botni Vífilsstaðavatns. Áður en farið er niður stíginn er útsýni í vestur ægi fagurt og á góðum degi er útsýni yfir hafið og blasir Snæfellsjökullinn við. Þegar komið er niður að Vífilsstaðavatni ofan af hæðinni er haldið beint áfram meðfram Vífilsstaðavatni að neðra bílastæði við útfallið í Hraunslæk (Vífilsstaðalækinn), farið yfir göngubrúna og beygt til vinstri að efra bílastæðinu og yfir Flóttamannaleiðina og áfram að Vífilsstöðum. Farið er framhjá Vífilsstöðum á bílaplaninu og beygt til hægri. Þá liggur leiðin beint að Miðgarði á nýrri malbikaðri göngubraut sem er 800 m niður að Miðgarði með góðum endaspretti.
Beautiful trail race in Gardabaer Iceland.